|
Fámennir
skólar

Samkennsla er einkennandi fyrir kennslu
í fámennum skólum. Hluti vefnámskeiðsins
er umfjöllun um fámenna skóla. Þátttakendur
vinna stutt verkefni með hjálp tengla í ýmsar
innlendar upplýsingar um fámenna skóla.
|
Samkennsla

Umfjöllun um kennslu í aldursblönduðum
hópum eða samkennslu árganga er hluti námskeiðsins.
Þátttakendur fara í vefleiðangur þar
sem þeir viða að sér þekkingu á
hugmyndafræði samkennslu og rökum með og
móti aldursblöndun.
|
Kennsluaðferðir

Þátttakendur geta valið
að læra um og vinna með nokkrar kennsluaðferðir
sem taldar eru nýtast vel við kennsluaðstæður þar sem árgöngum
er kennt saman.
|
|
Skipulag

Þátttaka í umfjöllun
um skipulag skólastarfs í fámennum skólum er valhluti af námskeiðinu.
Einnig um skipulag námshópa og námsefnis við samkennslu árganga.
Hér eru dæmi frá skólum um skipulag
skólastarfs í samkennslu.
|
Námsmat

Fjallað er um fjölbreyttar aðferðir við
námsmat. Hvernig hægt er að nýta próf, sjálfsmat, verkmöppur
og marklista við námsmat í fámennum skólum. Þessi
hluti vefjarins verður unninn nánar veturinn 2004-5.
Þá mun hér einnig verða fjallað
um hvernig nemendur geta stýrt samráðsfundum foreldra, kennara
og nemenda.
|
Umræða

Þátttakendur í námskeiðum og aðrir sem
vilja ræða málefni fámennra skóla og samkennslu árganga geta
nýtt sér umræðurnar sem fara fram á
málstofu
til skoðanaskipta, til þess að leita stuðnings eða veita stuðning.
|