Samkennsla árganga

Kennsluaðferðir -> þemanám og efniskönnun

Þemanám og efniskönnun

Þemanám, efniskönnun og samþætting eru samheiti yfir nokkrar aðferðir sem iðulega eru óljóst aðgreindar en eiga það sameiginlegt að fela í sér heildstæð viðfangsefni nemenda sem oft ganga þvert á námsgreinar og fléttast þannig saman í merkigarbæra heild.
Viðfangsefnin tengjast gjarnan umhverfi nemenda, þar sem þeir þurfa að leita fanga og afla sér þekkingar í mörgum mismunandi náms- eða fræðigreinum á borð við samfélagsgreinar, náttúruvísindi, stærðfræði, og listgreinar. Yfirleitt er átt við heildstæð viðfangsefni þar sem nemendur safna upplýsingum, flokka þær og skrá og miðla til annarra með ýmsum hætti. Lögð er áhersla á að námið feli í sér beina reynslu sem fengin er með athugunum og glímu við ákveðin úrlausnarefni (problem-solving).

Ekki eru hreinar línur um hvernig ber að skilgreina og afmarka hugtökin þemanám og efniskönnun. Í hugum margra merkir þema afmarkað tímabundið viðfangsefni sem byggir á samþættingu námsgreina og hópvinnu nemenda. Ingvar Sigurgeirsson skilgreinir þemanám í bók sinni um Litróf kennsluaðferðanna (1999:150-151) þannig að með því sé átt við umfangsmikil viðfangsefni sem ganga þvert á námsgreinar og að kennslan fylgi í aðalatriðum svipuðum skrefum og stigin eru þegar beitt er leitaraðferðum. Til viðbótar skilgreiningu Ingvars verður að taka fram að þema í kennslu getur einnig vísað inntaks náms innan einnar greinar. Til dæmis mætti hugsa sér að þema í myndlistarkennslu í ákveðinn tíma væri tiltekinn litur, eða mannslíkaminn og væri þá unnið með þessi viðfangsefni frá ólíkum sjónarhornum. Ítarlega er fjallað um þemanám í bók Lilju M. Jónsdóttur Skapandi skólastarf, sem Námsgagnastofnun gaf út 1996.

Samkvæmt áðurnefndri bók Ingvars Sigurgeirssonar (1999:131-132) felur efniskönnun eða "projekt" í sér að einstakir nemendur afla sér upplýsinga um tiltekið viðfangsefni annað hvort að eigin vali eða samkvæmt fyrirmælum kennara. Slík viðfangsefni geta ýmist verið innan einstakra námsgreina eða gengið þvert á hefðbundnar greinar en hvort heldur sem er fela þau í sér að afla þarf upplýsinga og gagna úr mörgum áttum og frá mörgum sjónarhornum til að leiða verkefnið til lykta. Við efniskönnun er nemendum kennt að vinna út frá rannsóknarspurningu(m) eða raunverulegum viðfangsefnum og skipuleggja vinnu sína frá hugmynd til lausnar eða niðurstöðu, sem sett er fram á sýnilegan eða hlutbundinn hátt.

Hér má geta þess að í aðalnámskrá grunnskóla í Noregi er gerður sá greinarmunur á þema og efniskönnun að þema sé kennarastýrt samþætt viðfangsefni en efniskönnun frekar nemendastýrð og geti ýmis verið bundin einni námsgrein eða falið í sér samþættingu. Samkvæmt þessum hugmyndum Norðmannanna er gert ráð fyrir að áhersla í námi færist smátt og smátt frá þemanámi yfir í "project" eftir því sem nemendur eldast og þannig sé aukið valfrelsi þeirra og sjálfstæði í námi (sjá Læreplanverket for den 10-årige grunnskolen. 1996. Det kongelige kirke-, utdannigs- og forskningsdepartement, bls. 71-84).

Samþætting námsgreina felur í sér að nemendur fást við tiltekið viðfangsefni, sem eru skipulögð með það fyrir augum að viðfangsefnin gangi þvert á námsgreinar og fléttist þannig saman í merkingarbæra heild. Viðfangsefnin tengjast gjarnan umhverfi nemenda, þar sem þeir þurfa að leita fanga og afla sér þekkingar í mörgum mismunandi náms- eða fræðigreinum á borð við samfélagsgreinar, náttúruvísindi, stærðfræði, og listgreinar.

Þótt blæbrigðamunur sé á skilgreiningum eiga þær þó sameiginlegt að leggja áherslu á að samþætt námskrá sé leið til að kenna nemendum að afla sér þekkingar og búa þá undir að stunda nám og endurnýja þekkingu sína á lífsleiðinni og að skólar verði að byggja starf sitt á að þekkingin sé sjóður sem erfitt er að hólfa niður í námsgreinar sem litla tengingu hafa sín á milli.

Í flestum skilgreiningum á enn fremur finna áherslu á eftirtalin atriði:

> Efni úr mörgum námsgreinum er dregin saman í einn sjóð
> Áhersla á sjálfstæð verkefni nemenda (projects)
> Fjölbreytt námsefni og þekkingarleit (auk kennslubókanna)
> Sköpuð tengsl milli hugmynda og hugtaka
> Þemavinna notuð sem grunnskipulag
> Sveigjanlegar stundaskrár
> Sveigjanleg skipting í hópa
> Fjölbreytt námsvinna nemenda
> Fjölbreytt námsmat sem tekur mið af samþættingu námsgreina.

 

Hér eru námskeiðsvefir um samþætt nám og efniskönnun:


Lesefni:

Lilja M. Jónsdóttir. 1996. Skapandi skólastarf. Reykjavík, Námsgagnastofnun

Ingvar Sigurgeirsson. 1999. Litróf kennsluaðferðanna. Reykjavík, Æskan (7. kafli bls. ....)

Vefefni:

Kynning á Könnunaraðferðinni, The Project Approach. Fyrir starfsfólk leikskóla. Vefleiðangur.

Arbeid i udelte og fådelte skular: Idéhefte (gefið út af norska menntamálaráðuneytinu)
Í kafla 2.3.6 er prýðileg samantekt um efniskönnun (prosjektarbeid)

Lake, Kathy. 1994. Integrated Curriculum. Grein um samþættingu

Afbragðs vefur um efniskönnun (project approach). Höfundar hans eru Sylvia Chard dósent við University of Alberta og Dianne Rothenberg hjá ERIC Clearinghouse

Lilian G. Katz.1994. The Project Approach. Grein af ERIC Digest

Vefur frá Buck Institute of Education. Hér má nálgast inngang að handbók um Project-Based Learning (á PDF formi)

Prosjektarbeid kennsluhefti (gefið út af norska menntamálaráðuneytinu)

Greinar um Project-Based Learning á EDUTOPIA-vefnum. Hlustið m.a. á Seymour Papert ræða um þemanám

 

 

Vefur þessi er unninn fyrir ... SFS
© Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga
Fagleg ráðgjöf og efni:
Ingvar Sigurgeirsson, Kennaraháskóla Íslands
Rúnar Sigþórsson, Háskólanum á Akureyri
Sara R. Valdimarsdóttir, Grunnskóla Akrahrepps
Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaðaskóla