Samkennsla árganga

Samkennsla >> bréf til skólanefndar

Fagrabyggð________________________PM 

 

Ágæta skólanefnd

Í sveitarstjórn Fögrubyggðar hefur komið til tals að leggja niður skólahald við Litlaskóla sem er fámennur skóli. Sveitarstjórn veltir fyrst og fremst fyrir sér faglegum þáttum skólastarfsins og hvort samkennsla árganga stuðli hugsanlega ekki að markvissu námi nemenda eða hvort mikilvægt sé fyrir nemendur að vera í árgangaskiptum bekkjum til að hægt sé að ná fram lögbundnum markmiðum skólastarfs.

Skólanefndarmönnum er falið að vera faglegir ráðgjafar sveitarstjórnar varðandi þessa umræðu um samkennslu árganga og ákvarðanatöku um framtíð Litlaskóla. Niðurstöðu þeirrar umfjöllunar er vænst fyrir sauðburð.

Sjá nánar...

Vinsamlegast

Fríður Ljótsdóttir
Sveitarstjóri

Fagrabyggð______________________________________________________ MP

Vefur þessi er unninn fyrir ... SFS
© Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga
Fagleg ráðgjöf og efni:
Ingvar Sigurgeirsson, Kennaraháskóla Íslands
Rúnar Sigþórsson, Háskólanum á Akureyri
Sara R. Valdimarsdóttir, Grunnskóla Akrahrepps
Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaðaskóla