Samkennsla árganga

Skipulag

Yfirlit

Miðstigið í Hallormsstaðaskóla (5. - 7. bekkur)

NÁMSHÓPURINN
Á miðstiginu í Hallormsstaðaskóla eru núna saman í samkennsluhópi þrír árgangar, 5. - 7. bekkur (18 - 20 nemendur). Þessum samkennsluhópi var breytt haustið 2002 en áður voru á miðstiginu 4. - 6. bekkingar. Ástæður þess að samkennsluhópnum var breytt voru bæði faglegar og fjárhagslegar. Aðalnámskrá grunnskóla frá 1999 er skipt upp þannig að námsmarkmið fyrir 5. - 7. bekk eru sett fram í samhengi og þessir árgangar eru einnig með sama kennslustundafjölda í viku hverri (35 stundir). Þessi breyting var einnig gerð til að fækka deildum við skólann úr fjórum í þrjár en það sparar tíma kennara og þar með fjármagn.

STUNDASKRÁ
Umsjónarkennarar á miðstigi eru tveir og skipuleggja, í samráði við stjórnendur, hvað er kennt hvenær og hafa í því sambandi hliðsjón af viðmiðunarstundaskrá (Aðalnámskrá grunnskóla frá 1999). Skiptilotur eru 2 - 4 í viku en þá eru tveir kennarar með hópinn í einu.

ÁÆTLANAGERÐ - VIKUÁÆTLANIR
Hvert barn gerir áætlun einu sinni í viku, fyrir hádegi á fimmtudegi en þá eru báðir kennarar með hópinn í einu. Kennararnir hafa skipt náminu niður á vikurnar þannig að þeir hafa yfirsýn yfir hvað hver árgangur þarf að gera að lágmarki í viku hverri til að komast yfir námsáætlun vetrarins. Kennarar taka til sín einn og einn nemanda í einu og skoða það sem gert hefur verið og ræða áætlun nemandans fyrir framhaldið.
Hvor kennari um sig hittir alla nemendur í áætlunargerð á hálfsmánaðar tímabili (vilja ekki skipta nemendum á milli sín, tryggir yfirsýn þeirra beggja). Hvor kennari um sig er ábyrgur fyrir heildaráætlanagerð í ákv. námsgreinum. Á meðan áætlað er vinna aðrir nemendur að námsvali í Valhöll. Áætlun er færð í skóladagbækur eða sérstaklega útbúnar áætlunarbækur. Misjafnlega mikill tími fer í að áætla með nemendum í hvert sinn og kennarar reyna að jafna þann tíma á milli nemenda þegar á heildina er litið.

NÁMSMAT
Áætlunartímarnir eru notaðir til þess að nemandinn og kennarinn skoði saman það sem gert hefur verið og meti það sameiginlega. Kennarar setja gjarnan svokölluð stoppmerki í bækurnar/námsefnið og nemendur vita að þegar að þeim er komið þurfa þeir að meta hvernig þeir hafa náð því sem búið er, áður en lengra er haldið. Kennarar taka einnig öðru hverju vinnu nemenda og fara nákvæmar yfir hana og svo eru kannanir og próf líka ef þörf er á. Verið er að vinna að útfærslu á verkmöppumati fyrir nemendur í Hallormsstaðaskóla og verður það einnig notað á miðstigi.

NÁMSEFNI
Val á námsefni er mismunandi og fer eftir getu nemenda í hverri námsgrein, það er því fremur algengt að nemendur í sama árgangi séu með mismunandi námsefni og vinni hver á sínum hraða. Námi í ákveðnum greinum er skipt niður í áfanga A, B og C og er þá áfangi A kenndur eitt árið, B það næsta o.s.frv. Söguaðferðin er mikið notuð til hvers konar samþættingar námsgreina ekki síst í samfélagsfræði og náttúrufræði.

NÁMSUMHVERFI
Í grunninn er rýminu skipt upp í tvennt (Valhöll og Miðstofu). Þannig skapast m.a. möguleiki á því að taka út ákveðinn hóp nemenda vegna sérstakrar umfjöllunar. Áhersla er lögð á að umhverfið sé heimilislegt og að draga skóginn inn í stofuna (birki og bastkörfur). Nemendur taka þátt í því að skipuleggja námsumhverfið, ákveða samskiptareglur og erindisbréf umsjónarmanna.


MIÐSTOFAN (uppdráttur):
Stofunni er ekki mikið skipt upp í afmörkuð svæði en það gefur möguleika á því að hafa umfjöllun með öllum hópnum í einu hvort heldur sem er yfir stofuna eða í heimakróknum. Þó eru gögn sem tilheyra ákveðnum námsgreinum höfð á ákveðnum svæðum í stofunni. Dregið er í sæti og er skipt um þau hálfsmánaðarlega. Flettitafla er í stofunni.
Í stofunni er heimakrókur með dýnum o.þ.h. sem er bæði nýttur til lesturs, umræðu og "innlagnar".
Kennarar hafa aðstöðu á tveimur stöðum í stofunni til að ná nemendum einstaklingslega til sín. Þessa aðstöðu nýta þeir einnig til að undirbúa sig og er ekki óalgengt að þeir séu að vinna inni í stofunni þó aðrir kennarar séu að kenna þar, enda segja þeir að þetta tengi þá meira við hópinn og vinnuumhverfið og þannig fái þeir fleiri og betri hugmyndir.

VALHÖLL: Þar er verkefnabankanum (valinu) komið fyrir, þar er möguleiki á því að taka út hóp nemenda til að fjalla um ákveðið efni og þar eru einstaklingsvinnuborð sem þeir geta nýtt sér sem það vilja. Þar eru líka alltaf uppi skákborð.

NÁMSVAL
Sjá annars staðar - sér kafli um það


 

Vefur þessi er unninn fyrir ... SFS
© Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga
Fagleg ráðgjöf og efni:
Ingvar Sigurgeirsson, Kennaraháskóla Íslands
Rúnar Sigþórsson, Háskólanum á Akureyri
Sara R. Valdimarsdóttir, Grunnskóla Akrahrepps
Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaðaskóla