|
Markmiðið
þessa vefs er tvíþætt:
Annars vegar
er hann ætlaður sem almenn fræðsla og
upplýsingabrunnur um samkennslu árganga og
starf í skólum þar sem námshópar
eru aldursblandaðir. Kennarar og aðrir geta sótt
sér þessa fræðslu og bergt af að
vild þegar þá þyrstir.
Hins vegar
er vefurinn einnig hugsaður sem
vefnámskeið
þar sem markmiðið er að efla þekkingu
og færni kennara sem kenna í aldursblönduðum
bekkjum. Á námskeiðinu munu þeir:
- öðlast
þekkingu og skilning á hugmyndafræði
samkennslu árganga og taka til hennar rökstudda
afstöðu,
- læra
um ólíkar leiðir sem farnar eru við
skipulag samkennslu,
- kynnast
nokkrum kennsluaðferðum
sem nýtast við samkennslu,
- læra
að skipuleggja nám og kennslu með tilliti til
aldursblöndunar og valinna kennsluaðferða,
Einnig
er markmið að vefurinn
- skapi
grundvöll að samskiptum og umræðum kennara
um kennslu í aldursblönduðum hópum,
þ.e. samkennslu,
- verði
vettvangur sem kynnir hugmyndafræði og vinnubrögð
við samkennslu.
|
Um
námskeiðið
Námskeiðið
er skipulagt sem vefnámskeið sem byggir á
lesefni, krækjusafni og verkefnum sem m.a. verða fólgin
í að búa til dæmi um útfærslur
og ræða saman á vefborði um þau.
Þátttakendur
geta hafið ferðina á að lesa inngang um fámenna
skóla og vinna upp stöðulýsingu á
eigin skóla og kennslu.
Þá
ættu allir að vinna með hugmyndafræði
samkennslu.
Einnig velja
þátttakendur sér kennsluðaferðir
sem þeir vilja dýpka skilning sinn á og
reyna í kennslu.
Vefurinn
gefur loks færi á að skoða hugmyndir um
skipulag samkennslu og námsmat í samkennslu sem
hægt er að velja að vinna með.
Umræðusvæðið
er ætlað öllum sem þátt taka og
verður þar með tímanum virkur samskiptavettvangur
kennara um allt land sem kenna við fámenna skóla.
|