Samkennsla árganga

Kennsluaðferðir

 

 

Kennsluaðferðir við samkennslu

Fjölmargar kennsluaðferðir henta vel við samkennslu. Hér er bent á nokkrar aðferðir sem vel hafa gefist:

Einstaklingskennsla
Félagakennsla (jafningjakennsla)
Lausnaleitarnám
Leitarnám og aðleiðsla
Samvinnunám
Söguaðferðin
Þemanám og efniskönnun
Fleiri aðferðir er að finna á Kennsluaðferðavef Ingvars Sigurgeirssonar

Fyrirmæli handa þeim sem eru að nýta þennan vef sem námskeið

Veljið a.m.k. tvær ofangreindra aðferða til að kynna ykkur sérstaklega. Leitið svara við eftirfarandi spurningum:

  • Hver eru meginmarkmið aðferðarinnar?
  • Á hvaða hugmyndafræði er byggt og hvernig tengist hún hugmyndafræði samkennslunnar?
  • Hvernig er aðferðinni beitt?
  • Hvað þarf einkum að hafa í huga þegar aðferðinni er beitt?
  • Hvað ber helst að varast?
  • Höfðar aðferðin jafnt til allra aldurshópa? Til hvaða hópa höfðar hún best?
  • Er hægt að beita aðferðinni í öllum námsgreinum eða hentar hún sérstaklega til kennslu í ákveðnum greinum?
  • Hvernig nýtist tölvu- og upplýsingatækni við beitingu aðferðarinnar?
  • Hvernig þarf að skipuleggja námsumhverfi þegar aðferðinni er beitt?
  • Hvers konar námsmat fellur best að aðferðinni?

Að þessari greiningu lokinni velur þú eina af þessum aðferðum og skipuleggur kennslu (kennsluáætlun) með hliðsjón af henni. Í kennsluáætluninni þurfa eftirfarandi atriði að koma fram:

·         Markmið

·         Helstu viðfangsefni

·         Námsefni og hjálpargögn

·         Tímarammi

·         Framkvæmd

·          Námsmat  

Vefur þessi er unninn fyrir ... SFS
© Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga
Fagleg ráðgjöf og efni:
Ingvar Sigurgeirsson, Kennaraháskóla Íslands
Rúnar Sigþórsson, Háskólanum á Akureyri
Sara R. Valdimarsdóttir, Grunnskóla Akrahrepps
Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaðaskóla