Samkennsla árganga

Kennsluaðferðir -> einstaklingskennsla

Einstaklingskennsla

Einstaklingskennsla (Individualized Instruction, Self-paced Learning, Self-Directed Learning, Contract Learning, Adaptive Learning) hefur verið skilgreind og útfærð með ýmsum hætti. Oftast er lögð áhersla á að nemandinn setji sér eigin markmið og taki aukna ábyrgð á eigin námi. Nemandinn áætlar afköst sín og setur sér mark að keppa að, t.d. með hvaða hætti hann hyggst bæta sig á ákveðnu sviði.  

Einstaklingskennsla, í þeirri merkingu sem sem hér er lögð í þetta hugtak, er gjarnan
skipulögð í kringum reglulega fundi kennara og nemanda, t.d. einu sinni í viku. Á þessum fundum er farið yfir stöðu mála, nemandi og kennari leggja mat á hvernig til hefur tekist og leggja línur varðandi það nám sem framundan er. Segja má að hér sé um nokkurs konar námssamning að ræða.

Afar mismunandi er hversu langt er gengið við að beita þessari aðferð. Hana má leggja til grundvallar skólastarfinu í heild eða nýta við útfærslu á kennslu á afmörkuðum sviðum. Sem dæmi má nefna að tengja viðfangsefnin ákveðnum námsgreinum, afmörkuðum námsþáttum eða t.d. heimanámi. Ekki er óalgengt að einstaklingskennslu sé beitt í námsgreinum eins og stafsetningu, skrift og stærðfræði. Hver nemandi lærir síðan á eigin hraða, tekur stöðupróf eftir því sem við á, og keppir að því að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. Við skipulagningu einstaklingskennslu er oft höfð hliðsjón af markmiðum eins og þau eru sett í skólanámskrá eða að byggt er á þrepamarkmiðum Aðalnámskrár.

Þessi vinnubrögð hafa einnig verið kennd við einstaklingsáætlanir eða einfaldlega áætlun.

Þróuð hafa verið margvísleg hjálpartæki til að nota við skipulagningu einstaklingskennslu. Má þar nefna dagbækur, eyðublöð, gátlista, matslista og uppgjörs- og
endurgjafarform.

Efni af Netinu:

Students can learn on their own. Heimasíða Robert Jackson
Using Self-Directed/Contract Learning (frá Center for Teaching Excellence)
Adaptive Learning Environments Model (af Tools for Schools vefnum)

Einnig er bent á mjög fínan vef um einstaklingsmiðað nám og námsaðlögun: "The Best Practice site þar sem fjallað er um ýmislegt í kennslu- og starfsháttum sem gerir kennurum kleift að koma á einstaklingsmiðuðu námi í kennslu sinni.

Vefur þessi er unninn fyrir ... SFS
© Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga
Fagleg ráðgjöf og efni:
Ingvar Sigurgeirsson, Kennaraháskóla Íslands
Rúnar Sigþórsson, Háskólanum á Akureyri
Sara R. Valdimarsdóttir, Grunnskóla Akrahrepps
Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaðaskóla