Mynd: Helga Björt Möller
Samkennsla árganga

Fræðsluvefur og umræðuvettvangur
Forsíða

Fara beint á málstofuna

Yfirlit

Velkomin/n á vef um samkennslu árganga.

Þessum vef er ætlað að veita þeim stuðning sem vilja kynna sér þá kennsluhætti sem beitt er við samkennslu árganga.  

Með samkennslu árganga er átt við kennslu í námshópum þar sem árgangar eru tveir eða fleiri og byggt er á kennsluskipulagi sem miðar að því að kenna árgöngunum saman, sem samstæðum hópi nemenda með mismunandi námsþarfir, án varanlegrar aðgreiningar eftir aldri eða námsgetu. Í samkennslu er leitast við að skapa börnum á mismunandi aldri aðstæður til náms á eigin forsendum, en ekki samkvæmt aldurstengdum markmiðum námskrár eða aldurstengdu námsefni.

Vefurinn er ætlaður öllum þeim sem áhuga hafa á samkennslu. Mikið af því efni sem hér er að finna ætti að nýtast vel starfsfólki fámennra skóla, en þeir hafa verið leiðandi í þróun samkennslunnar. Benda má á að aldursblöndun er oft tengd kennsluháttum þar sem byggt er á einstaklingsmiðuðu námi. Vefurinn getur því nýst vel starfsfólki skóla sem vilja þróa kennsluhætti af því tagi.

Vefurinn er settur upp með þeim hætti að hægt er að nýta hann með tvennu móti:

  • Í fyrsta lagi er vefurinn hugsaður sem almennur upplýsingabrunnur um ýmsar hliðar samkennslunnar (sjá hér fyrir neðan)

  • Í öðru lagi getur vefurinn verið grunnur fyrir leshring eða námskeið um efnið.

Til glöggvunar fyrir þá sem vilja nýta vefinn sem námskeið eru fyrirmæli og verkefni merkt .

Þeir sem óska eftir leiðsögn vegna námskeiðs geta snúið sér til umsjónarmanns vefjarins (thorabj@skagafjordur.is), Símenntunarstofnunar Kennaraháskóla Íslands (simennt@khi.is) eða Skólaþróunarsviðs kennaradeildar Háskólans á Akureyri (trausti@unak.is).

Á vefnum er efni um:

samkennslu árganga
fámenna skóla
kennsluaðferðir sem styðja við aldursblöndun

skipulag skólastarfs í aldursblönduðum hópum

námsmat sem nýtist við aldursblöndun


Á vefnum er einnig málstofa um samkennslu árganga og starf í fámennum skólum. Málstofan öllum opin.

Ágætt yfirlit um vefinn er á yfirlitssíðunni. Nánari upplýsingar um markmið vefjarins og stutt kynning á honum.

Verið velkomin að nýta ykkur þennan fræðsluvef.


Í dag er

Vefur þessi er unninn fyrir ... SFS
© Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga
Fagleg ráðgjöf og efni:
Ingvar Sigurgeirsson, Kennaraháskóla Íslands
Rúnar Sigþórsson, Háskólanum á Akureyri
Sara R. Valdimarsdóttir, Grunnskóla Akrahrepps
Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaðaskóla


Endurmenntunarsjóður grunnskóla styrkti vinnu við þennan vef